
Aðgerðir á snertiskjá
Til að nota símann skaltu pikka eða styðja í stutta stund á snertiskjáinn.
Mikilvægt: Forðast skal að rispa snertiskjáinn. Aldrei skal nota penna, blýant eða
aðra oddhvassa hluti á snertiskjánum.
Nokia Suite sett upp í tölvu
19

Forrit eða hlutur opnaður
Pikkaðu á forritið eða hlutinn.
Haltu fingri á forritinu eða hlutnum til að sjá fleiri valkosti
Settu fingur á hlut þar til valmyndin opnast.
Dæmi: Til að senda mynd eða eyða vekjara heldurðu fingri á myndinni eða vekjaranum
og velur síðan viðeigandi valkost.
Draga atriði
Haltu inni hlut og renndu fingri yfir skjáinn.
Dæmi: Hægt er að draga hluti á heimaskjánum eða þegar aðalvalmyndinni er breytt.
20
Grunnnotkun

Strjúka
Settu fingur á skjáinn og renndu honum í þá átt sem þú vilt.
Dæmi: Til að skipta yfir í annan heimaskjá strýkurðu til vinstri eða hægri.
Til að fletta á fljótlegan hátt í gegnum langan lista eða valmynd rennirðu fingrinum
hratt upp eða niður á skjánum og tekur hann svo af skjánum. Smelltu síðan á skjáinn
til að hætta að fletta.
Notaðu aðdrátt
Settu tvo fingur á atriði, til dæmis kort, mynd eða vefsíðu, og færðu fingurna í sundur
eða saman.
Ábending: Einnig er hægt að smella tvisvar á hlutinn.
Grunnnotkun
21