Upplýsingar um staðsetningu vistaðar á myndum og myndskeiðum
Viltu vita nákvæmlega hvar þú varst þegar þú tókst mynd eða tókst upp myndskeið?
Eða viltu frekar að þessar upplýsingar birtist ekki á myndum og myndskeiðum?
Breyttu stillingunni fyrir skráningu staðsetningar í símanum.
Kveikt og slökkt á skráningu staðsetningar
1 Veldu >
Stillingar
og
Persónuvernd
.
2 Stilltu
Vista stað í Myndavél
á
Já
eða
Nei
.
Hægt er að hengja staðsetningarupplýsingar við mynd eða myndskeið ef hægt er að
ákvarða staðsetninguna með símkerfinu eða GPS. Ef þú deilir mynd eða myndskeiði
sem inniheldur staðsetningarupplýsingar geta þeir sem skoða myndina eða
myndskeiðið hugsanlega séð upplýsingarnar Hægt er að gera landmerki óvirk í
stillingum myndavélarinnar.
Það getur tekið nokkrar mínútur að fá staðsetningarhnitin.
Framboð og gæði GPS-merkja kann að verða fyrir áhrifum af staðsetningu þinni,
staðsetningu gervihnatta, byggingum, náttúrulegum hindrunum, veðurskilyrðum og
breytingum á GPS-gervihnöttum sem gerðar eru af Bandaríkjastjórn. Ekki er víst að
GPS-merki náist inni í byggingum eða neðanjarðar.
Ekki skal nota GPS við nákvæmar staðsetningarmælingar og aldrei ætti að treysta
eingöngu á staðsetningargögn frá GPS og farsímakerfum.