
Skilaboð send
Texta- og margmiðlunarskilaboð eru góð leið til að hafa samband við fjölskyldu og
vinu.
Skilaboð
55

1 Veldu >
Skilaboð
og .
2 Veldu
Til
til að velja tengilið sem viðtakanda. Þú getur einnig slegið inn símanúmer.
3 Skrifaðu skilaboðin í textareitinn og veldu .
Ábending: Til að bæta við viðhengi, t.d. mynd eða myndskeiði, velurðu .
4 Veldu táknið
.
Ábending: Til að senda skilaboð á tengilið á tengiliðalistanum heldurðu fingri á
tengiliðnum og velur
Senda skilaboð
.
Það kann að vera dýrara að senda skilaboð með viðhengi en að senda venjuleg
textaskilaboð. Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar.
Hægt er að senda textaskilaboð sem eru lengri en stafafjöldi í einum skilaboðum leyfir.
Lengri skilaboð eru send sem tvö eða fleiri skilaboð. Þjónustuveitan tekur hugsanlega
gjald í samræmi við það.
Stafir sem nota kommur, önnur tákn eða valkosti sumra tungumála taka meira pláss
og takmarka þann stafafjölda sem hægt er að senda í einum skilaboðum.
Ef textaskilaboð eru mjög löng er þeim hugsanlega breytt í margmiðlunarskilaboð. Til
að senda skilaboðin sem textaskilaboð velurðu
>
Sendikostir
>
Gerð skilaboða
>
Texti
.
Ef þú sendir textaskilaboð til fleiri en eins viðtakanda og einn tengiliður er skráður
með netfang en ekki símanúmer er textaskilaboðunum breytt í
margmiðlunarskilaboð.
Ef hluturinn sem settur er í margmiðlunarskilaboð er of stór fyrir símkerfið getur
tækið minnkað hann sjálfkrafa.
Aðeins samhæf tæki geta tekið á móti og birt margmiðlunarskilaboð. Skilaboð geta
litið mismunandi út eftir tækjum.